|
Íslensk uppfinning í fararbroddi
Valorka ehf vinnur að þróun hverfla til virkjunar sjávarfallaorku. Valorka hverflarnir hafa mikla sérstöðu og virðast henta mjög vel til virkjunar þess straumhraða sem algengur er við strendur og annes víða um heim. Þeir hafa einnig víðtækara notagildi, t.d. til virkjunar vindorku. Valorka ehf vinnur einnig að rannsóknum og gagnaöflun varðandi nýtingu sjávarorku. Hluti þess er verkefni sem snýr að rannsóknum sjávarstrauma í röstum við annes Íslands, en þær rannsóknir hafa ekki áður verið gerðar.
Valorka ehf. vinnur í nánu samstarfi við færustu sérfræðinga og nýtur stuðnings Tækniþróunarsjóðs og Orkusjóðs. Valdimar Össurarson, stofnandi Valorku ehf á hugmyndir að baki hverflunum og einkaleyfi þeim tengd. |