Forsvarsmenn Valorku; Valdimar Össurarson og Hjördís Björk Ásgeirsdóttir, áttu í dag fund með Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis- orku og loftslagsráðherra. Skýrsla Valorku; Sjávarfallaorka 2025, var kynnt og ráðherra inntur eftir fyrirætlunum núverandi ríkisstjórnar í málefnum sjávarfallaorku. Minnt var á þingsályktun frá 2014 og síðari skýrslur stjórnvalda, en fyrir liggur samþykkt Alþingis um að hefja rannsóknir á sjávarfallaorku; koma á fót gagnagrunni á því sviði og sækja um aðild að alþjóðlegu samstarfi. Undirstrikuð var sú staðreynd að við Íslendingar erum nú eftirbátar annarra strandríkja um opinbera stefnumótun á þessu sviði; og að innlendri tækniþróun er haldið niðri, þrátt fyrir að hún sé tækifæri til að komast í fremstu röð og skapa mikil tækifæri til tækniframleiðslu.
Ráðherra reyndist mjög áhugasamur um þessi málefni; jákvæður og lausnamiðaður. Er það viðhorf mjög í takti við nýlega samþykkta málefnaskrá Samfylkingarinnar, en þar er lögð meiri áhersla á sjávarfallaorku en áður hefur sést í stefnumótun íslensks stjórnmálaflokks.
Í ljós kom að nú þegar er unnið að aðild Íslands að Alþjóða orkustofnuninni (IEA), en það var eitt þriggja áhersluatriða þingsályktunarinnar. Með því gefst færi á aðild að IEA-OES, sem er sjávarorkudeild stofnunarinnar.
Rætt var um rannsóknir sjávarfallaorku, og með hvaða hætti væri lagt í það verkefni. Ýmis atriði í þeim efnum verða skoðuð betur og verður greint frá þeim eftir því sem málinu vindur fram.
Vinna er hafin á Alþingi, sem miðar að því að rjúfa kyrrstöðuna í þessum efnum, bæði varðandi stefnumótun í málefnum sjávarfallaorku og rannsóknir á umfangi og nýtingarmöguleikum hennar. Fyrir þeirr vinnu fer Sigmundur Ernir Rúnarsson, en hann átti mikinn þátt í áðurnefndri þingsályktun frá 2014, á fyrri þingsetutíma sínum. Fleiri þingmenn hafa sýnt málefninu áhuga.
Á þessum tíma er því ástæða til meiri bjartsýni í þessum málaflokki en verið hefur um langt árabil.