Fréttir
- Samstarfsverkefnið Nordic Tidal Energy
- Kynningarstarf og fyrirlestrar
- Sjávarorkurannsóknir: víðtækt faglegt samstarf
- Prófunaraðstaða á Hornafirði
- Sjóprófanir undirbúnar
- Alþingi tekur tillögu um sjávarorku til umræðu
- Áramótapistill
- V-5 lofar góðu í fyrstu prófunum
- Landsbankinn styrkir Valorka verkefnið
- Framundan hjá Valorku
| Landsbankinn styrkir Valorka verkefnið |
| Skrifað af: Valdimar Össurason |
| Þriðjudagur, 01. nóvember 2011 18:54 |
|
Landsbankanum er hér með þakkað kærlega fyrir þennan skilning á verkefnum Valorku, og um leið er bankanum óskað til hamingju með það framtak sem styrkveitingarnar eru. Hér er komin kærkomin og þörf viðbót við þá styrkjamöguleika sem í boði eru fyrir ný og uppbyggileg verkefni. Vonandi verður hér rekin sjálfstæð styrkjastefna sem gefur minna menntuðum hugvitsmönnum ekki síðri tækifæri en verkefnum stórra stofnana og fyrirtækja. Slíkt hefur sárvantað í íslenskri nýsköpun. Á meðfylgjandi mynd eru verðlaunahafarnir 7 ásamt Jensínu K. Böðvarsdóttur framkvæmdastjóra þróunar hjá Landsbankanum, lengst t.v, Valdimar Össurarson frkvstj. Valorku er lengst til hægri á myndinni.
|
Valorka ehf. | Skógarbraut 1104 | 235 Reykjanesbær | Sími 426 5900 og 862 2345


Landsbankinn sýnir mikinn metnað og vilja til að leggja sitt af mörkum til aukinnar nýsköpunar og bætts þjóðarhags, en bankinn hefur nú í fyrsta sinn úthlutað nýsköpunarstyrkjum til fjölda verkefna. Heildarupphæð styrkja var 15 milljónir, sem skiptist í 7 styrki að upphæð 1.000.000 og 20 styrki að upphæð 400.000 kr. Rúmlega 350 umsóknir bárust, sem er enn einn vitnisburðurinn um hina gríðarlegu grósku sem nú er í nýsköpunarstarfi í landinu. Valorka ehf var meðal þeirra 7 sem hlutu einnar milljón króna verkefnisstyrk, og er hann veittur annars vegar til þróunar Valorka hverflanna og hinsvegar til rannsókna á sjávarorku.