Fréttir
- Samstarfsverkefnið Nordic Tidal Energy
- Kynningarstarf og fyrirlestrar
- Sjávarorkurannsóknir: víðtækt faglegt samstarf
- Prófunaraðstaða á Hornafirði
- Sjóprófanir undirbúnar
- Alþingi tekur tillögu um sjávarorku til umræðu
- Áramótapistill
- V-5 lofar góðu í fyrstu prófunum
- Landsbankinn styrkir Valorka verkefnið
- Framundan hjá Valorku
| Ný vinnustofa Valorku í Eldey |
| Skrifað af: Administrator |
| Föstudagur, 04. mars 2011 00:00 |
|
(mynd úr vinnustofu) Tveir gallar eru þó enn óleystir varðandi Eldey, og e.t.v. önnur setur af því tagi. Annarsvegar væri mikil þörf á sameiginlegum vélasal, þar sem leigjendur gætu komist í vélar til afmarkaðra verkefna. Þa myndi skapa mikið hagræði í stað þess sem nú er; að hver þurfi að eiga dýrar vélar sem notast lítið. Þetta myndi þó kosta umsjónarmann með tækjunum, og þann kostnað hefur ÞK ekki viljað leggja í ennþá. Hitt atriðið er svo það að leiga aðstöðu í Eldey er tiltölulega há, a.m.k. fyrir þau frumkvöðlaverkefni sem eiga erfitt með fjármögnun. Leiga Valorku núna er 500 kr/m², sem er lítið undir markaðsverði. Hlýtur að teljast undarlegt að ríkissjóður, sem er bakhjarl ÞK, skuli þannig íþyngja verkefnum sem kunna að reyna þjóðhagslega hagkvæm. Þær mótbárur hafa heyrst að leiga þurfi að vera nokkuð há til að „losna við starfsemi sem ekki getur flokkast undir frumkvöðlastarfsemi“. Spyrja má á móti hvort ekki sé skynsamlegra að vera með gott og stöðugt mat og eftirlit að hálfu rekstraraðila. |
Valorka ehf. | Skógarbraut 1104 | 235 Reykjanesbær | Sími 426 5900 og 862 2345

