|

Glærukynning á stöðu verkefna Valorku og og fleiru. Samantekin í febrúar 2013 í tilefni af erindi á orkuráðstefnu í Hornafirði.
 Sjávarfallaorka og hagsmunir Íslendinga. Með þessari samantekt Valdimars Össurarsonar er í fyrsta sinn gerð tilraun til að vekja athygli á þeim miklu auðlindum sem Íslendingar eiga í formi sjávarfallaorku og þeim möguleikum sem þjóðin nú hefur á því sviði. Meginefni skýrslunnar er útdráttur úr niðurstöðum rannsókna sem fram hafa farið á umfangi og nýtingamöguleikum sjávarfallaorku víða um heim, einkum í Írlandi og Bretlandi. Einnig er fjallað um hina miklu stefnubreytingu flestra ríkja heims í orkumálum og þá möguleika sem við höfum til að komast í fremstu röð í tækniþróun á þessu sviði. Fjallað er um Valorka hverfilinn og Rannsóknamiðstöð sjávarorku sem Valorka hefur sett á fót í samstarfi við aðra aðila.

Sjávarfallaorka 2012. Hér er tekinn saman fróðleikur um stöðu sjávarfallaorku í einstökum löndum árin 2011 og 2012 eftir því sem næst verður komist. Helstu heimildir eru ársskýrslur Alþjóða orkumálastofnunarinnar, IEA_OES, og Alþjóða Orkuráðsins WEC, en einnig birt efni þróunarfyrirtækja og opinberra aðila.

Valorka 2012. Staða verkefna Valorku ehf í oktober 2012: Þróun hverfla; kerprófanir og fyrirhugaðar flekaprófanir; lýsing flekalíkans; aðferðir við nýtingu; 1. verðlaun sem besta uppfinning heims árið 2011; Rannsóknamiðstöð sjávarorku; samstarf; ný stefnumótun stjórnvalda; sinnuleysi um mestu orkulind landsins. Margt fleira er dregið fram í þessu stöðuyfirliti Valorku.
Tidal and current energy resources in Ireland - (Írland 2006) Merk skýrsla Írskra stjórnvalda byggð á ítarlegri rannsóknarvinnu. Aðstæður við Írland eru um margt líkar og hér, en það er 70% af flatarmáli Íslands. Því er það athyglisvert ef við Írland eru 240 TWst/ári í formi sjávarfallaorku; margföld nýtanleg orka vatns- og gufuorku hérlendis. Ocean energy in Ireland - (Írland 2005) Skýrsla um nýtingarmöguleika öldu- og sjávarfallaorku við Írland Ocean energy roadmap - (Írland 2010) Áætlanir Íra varðandi sjávarorkunýtingu. (Hvar er áætlun Íslendinga?)
Vefsíður um sjávarorku og aðra hreinorku:
Tímarit:
Ocean energy directory - vefsíðusafn um sjávarorku PesWiki - Alfræði um sjávarfallaorku; tækni, aðferðir, eiginleikar o.fl. Tidal today - Vandað tímarit um sjávarfallaorku Renewable energy world - Tímarit um endurnýjanlega orku World of renewables - Annað um sama efni Cleanindex - Sænsk síða; fréttir og fjárfestar Renewable energy development - Tímarit um þróun hreinorku Ocean power magazine - Tímarit um sjávarorku Marine and hydro technology database - Gagnasafn bandaríska orkumálaráðuneytisins á þessu sviði
Stofnanir:
IEA-OES - Sjávarorkudeild Alþjóða-orkumálastofnunarinnar EU-OEA - Sjávarorkusamtök Evrópu; samtök hagsmunaaðila OREC - Hliðstæð samtök bandarískra hagsmunaaðila á sviði sjávarorku WEC - Alþjóða-orkuráðið Eurocean - Evrópska hafrannsóknastofnunin EREC - Evrópuráðið fyrir endurnýjanlega orku NAREC - Bresk miðstöð endurnýjanlegrar orku SEAI - Stofnun hreinnar orku á Írlandi Nordicenergy - Orkurannsóknastofnun Norrænu ráðherranefndarinnar Agores - Yfirlitsvefur um undurnýjanlega orku RenewableEnergy.no - Norskur vefur um endurnýjanlega orku Irena - Alþjóðasamstarf um endurnýjanlega orku ETI - Bresk stofnun um alþjóðasamstarf til eflingar hreinorkunýtingar SuperGen - Rannsóknamiðstöð breskra stjórnvalda um sjávarorku
Tækniþróun:
Marine current turbines - (Bretl.) MCT er komið lengst allra í sjávarfallatækni. Skrúfuhverflar til sundavirkjana. Hammerfest ström - (Noregur) Elsta fyrirtækið í sjávarfallatækni og enn í fremstu röð. Skrúfuhverflar. Hydra tidal - (Noregur) Þetta norska fyrirtæki lagði risahverflinum Morild 2 í árslok 2010. Skrúfuhverflar. Clean current - (Kanada) Þróar skermaða skrúfuhverfla til notkunar í ám og sjávarföllum. Neptune renewable energy - (Bretl.) Þróar fljótandi gegnumstreymishverfla með lóðréttum öxli Verdant power - (USA) Hefur í nokkur ár þróað skrúfuhverfil til notkunar í ám og sjávarföllum Atlantis resources - (Bretl.) Alþjóðlegt fyrirtæki sem þróar skrúfuhverfil.
|